Upplýsingar um snjallari.is

Fyrirtækið sem rekur snjallari.is er Snjallari ehf., kennitala: 630720-0790 , virðisaukanúmer þess er 138641. Hægt er að hafa samband gegnum netfangið snjallari@snjallari.is eða í síma 888-2828.

Snjallari ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Pöntunin er send á valdar N1 stöðvar í samvinnu við Dropp. Þangað má sækja pantanir á þeim tíma sem hentar kaupanda best. Hægt er að kynna sér þjónustu Dropp betur með því að smella hér. Varan er afhent frá seljanda til Dropp næsta virka dag eftir pöntun.

Frí heimsending er á pöntunum 10.000 kr og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Sendingakostnaður með Dropp er 750 kr. Ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira fellur sendingakostnaður niður.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Snjallari ehf. heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.